Natalía frá Söguey
47 minutes ago
1 min read
Síðasta folaldið sem fæddist mér í sumar var Natalía frá Söguey. Natalía er undan gæðingunum Guðbjörtu frá Úlfsstöðum og Miðli frá Hrafnagili. Guðbjört er mikill gæðingur og skartaði 5x 9,0 í kynbótadómi aðeins 4. vetra gömul sýnd af Hans Kjerúlf. Miðil þarf vart að kynna en þar fer einn albesti gæðingur landsins um þessar mundir. Það verður spennandi að fylgjast með framvindu Natalíu á komandi árum.

Natalía frá Söguey


Hæfileikaeinkunn Guðbjartar 4. vetra






Comments