Folaldasýning Náttfara
- 1 day ago
- 1 min read
Folaldasýning Náttfara fór fram laugardaginn 7 feb sl. Söguey sendi fjögur folöld á sýninguna sem heppnaðist vel sem fyrr. Eyþór Einarsson dæmdi gripina og fór svo að Sólfari frá Söguey hlaut þriðja sætið í flokki hestfolalda og Smáralind frá Söguey það fjórða í hryssuflokki. Sólfari er undan Snerpu frá Úlfsstöðum og Sólfaxa frá Herríðarhóli, hann er sameign okkar Jóns Elvars. Smáralind er undan Sýn frá Söguey og Smára frá Söguey en Smári er undan Smáralind frá Kollaleiru og Pensli frá Hvolsvelli. Hann er á 5. vetur og er í tamningu hjá Daníel Jónssyni. Einnig tóku þátt Súld frá Söguey undan Ljósbrá frá Úlfsstöðum og Smára frá Söguey sem og Soldán frá Söguey undan Smáralind frá Kollaleiru og Miðli frá Hrafnagili og er hann einnig sameign okkar Jóns Elvars.








Comments