Hestaleiga.is
Sep 5
Reiðskóli Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Laugardagur, 26. september 2009 19:51

Reiðskólinn hefst um svipað leyti og grunnskóla lýkur á vorin þ.a.s. í byrjun Júní.

Reiðnámskeið nr 1

Hvert námskeið er fimm dagar frá mánudegi til föstudags og hefst alla daga kl 8.00 og stendur til kl 12.00.
Námskeiðin eru ætluð börnum á grunnskóla aldri. Krakkarnir þurfa að koma með nesti alla dagana nema á föstudögum þá grillum við fyrir þau.


Sjáið hestana

Hópnum er oftast skipt í tvennt óvanir og þeir sem einhverja reynslu hafa.

Byrjendahópur er fyrir þá sem hafa litla sem enga reynslu af hestum og er byrjað á að kenna undirstöðuatriði í umgengni við hesta sem og í reiðmennsku. Í framhaldi er svo kennd áseta og stjórnun.
Fyrir þá sem eru lengra komnir er meira lagt uppúr reiðtúrum og að nemandinn nái góðri tengingu við hestinn. Verðið á þessum námskeiðum er 13.000 kr

Reiðnámskeið nr 2

Reiðnámskeið fyrir krakka 4 til 6 ára verður í sumar eftir hádegi frá kl. 14.00 til 16.00 og kosta 9.000 kr

Reiðnámskeið nr 3

Reiðnámskeið fyrir krakka sem hafa komið á mörg námskeið eða krakka sem eru vön. Byggist fyrst og fremst á reiðtúrum, þessi námskeið kosta 10.000 kr.

Reiðnámskeið nr 4

Námskeið fyrir lítið vanar konur sem langar á hestbak eða þær sem misst hafa kjarkinn en langar til að byrja aftur. Námskeiðið er í þrjá daga frá kl 18 til 20 og kostar 8.000 kr

Fyrir allra yngstu krakkanna (leikskólabörn) er hægt að panta hjá okkur og er þá teymt undir þeim.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 13. júní 2010 20:22
 

Kort af staðsetningu