| Mikil aðsókn á reiðnámskeiðin |
|
|
|
| Skrifað af: Rósberg Óttarsson |
| Fimmtudagur, 24. júní 2010 00:19 |
|
Reiðnámskeiðin fara vel af stað og er nú orðið fullbókað á fyrstu fjögur almennu námskeiðin. Næsta námskeið sem er laust byrjar 12. júlí. Þessa vikuna er einnig í gangi námskeið fyrir 4 til 6 ára krakka og eru níu krakkar á því. Í næstu viku er framhaldsnámskeið e.h. og svo vikuna þar á eftir 5 til 9 júlí er konunámskeið en skráning á það er nú í gangi og fer vel af stað. Við erum nú komin aftur í samstarf við Hestamannafélagið Létti og gæti svo farið að við notfærum okkur aðstöðuna á Hömrum sem við höfum nú aðgang að. Hestaleigan hefur verið að glæðast síðustu daga og vonandi verður " túristinn" duglegur að heimsækja okkur í sumar.
|







