| Fjölgar á Hrísum |
|
|
|
| Skrifað af: Rósberg Óttarsson |
| Miðvikudagur, 09. júní 2010 20:21 |
|
Það kom heldur betur góður kippur í merarnar um helgina og þegar þetta er skrifað eru fædd fimm folöld á Hrísum. Líf frá Efsta-Dal reið á vaðið og kastaði brúnni hryssu sem skírð var Dalalíf frá Miðgerði. Dalalíf er undan Fjarka frá Breiðholti. Laugardaginn 5. Júní köstuðu svo þrjár hryssur, fyrst Týva frá Árgerði rauðstjörnóttum hesti, Magnúsi frá Miðgerði undan Dósent frá Brún. Þá var komið að Rán frá Steinnesi með jarptvístjörnótta hryssu Þrá frá Miðgerði undan Þorra frá Þúfu. Loks er að líða tók á kvöldið var komið að henni Lottu frá Garði sem kastaði rauðum hesti undan Auð frá Lundum. Gulli vinur minn á hana Lottu frá Garði. Svo nú í morgun var Sunneva frá Akureyri Dósentsdóttirin köstuð svörtstjörnóttu folaldi sem er undan Spóa frá Kjarri og verður það að öllum líkindum grátt. Ekki var unnt að kyngreina gripinn en það verður gert fljótlega og eins myndað í bak og fyrir.
Týva og Magnús
Rán og Þrá
Lotta og Auðssonur
Líf og Dalalíf |










