|
Skrifað af: Rósberg
|
|
Laugardagur, 09. ágúst 2008 07:49 |
|
Eigendur Káts hestaleigu/reiðskóla eru hjónin Rósberg Halldór Óttarsson og Þórdís Rósa Sigurðardóttir ásamt börnum sínum þeim Hafdísi, Kristni Þór og Júlíu Rún. Þau keyptu Kát haustið 2007 og hófum starfsemi vorið 2008.
Áhugi á hestum kviknaði haustið 2004 þegar þau keyptu sumarbústað á Hrísum í Eyjafirði og þeim gafst kostur á að nýta jörðina sem þau eiga að einum þriðja í dag. Rósberg heillaðist strax að öllu sem snýr að ræktun íslenska hestsins og fljótlega voru keyptar merar til ræktunar og eins var keyptur 1/3 hlutur í stóðhestinum Dósent frá Brún. Júlía var aftur á móti hrifnari af því að ríða út og voru keyptir barnahestar handa henni. Júlía starfar á sumrin við hestaleiguna og reiðskólann ásamt föður sínum en Þórdís, Hafdís, Haddi kærasti hennar og Kristinn Þór sjá um að flytja gestina til og frá hestaleigunni ásamt reyndar fjölmörgum öðrum sem hafa hjálpað okkur. Þetta vatt uppá sig og í dag á fjölskyldan í kringum 40 hross. Ræktunin er kennd við jörðina Miðgerði í Eyjafirði en eigendur Miðgerðis eru bræðurnir Sigurgísli og Sveinbjörn sem eiga Hrísa með fjölskyldunni.

Rósberg og Þórdís

Hafdís og Haddi

Kristinn Þór

Júlía Rún
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. desember 2009 23:55 |