| Hrísar |
|
|
|
| Skrifað af: Rósberg |
| Föstudagur, 04. desember 2009 11:20 |
|
Hrísar í Eyjafjarðarsveit Sveitasæla á Hrísum.
Á Hrísum í Eyjafjarðarsveit er til útleigu aðstaða fyrir ýmiskonar mannfagnaði s.s. ættarmót, afmæli, fundarhalda eða tjaldútilegur. Á staðnum er veislusalur sem rúmar um 80-90 manns í sæti, tvær snyrtingar, eldhúskrókur með tveimur ísskápum, tveimur hellum, uppþvottavél og stórri kaffikönnu. Stór verönd er fyrir utan sem rúmar mörg borð og stóla og er mikið notað ef vel viðrar. Við enda verandar er gengið inn í hlöðuna sem er notuð í ýmislegt. Gólfið er að hluta klætt pallaefni þannig að auðvelt er að nýta hana undir hlöðuball auk þess er lítið upphækkað svið fyrir t.d. hljómsveit. Þarna inni eru garðhúsgögn og stólar. Segja má að veislusalurinn og hlaðan myndi einskonar L sem gerir það að verkum að stór grasflöt er þar á milli sem fólk hefur notað til að tjalda á. Þá er það einkum í minni ættarmótum en í þeim stærri hefur þetta svæði frekar verið notað sem leiksvæði og tjaldað á túni 50 metra frá. Íbúðarhúsið er þarna rétt við og segja má að í því sé allur útbúnaður sem prýðir venjulegt íbúðarhús s.s eldavél, ísskápur, uppþvottavél, örbylgjuofn, sjónvarp og auk þess saunaklefi. Í húsinu eru sex svefnherbergi, fjögur á efri hæð og í kjallara eru tvö svefnherbergi. Í íbúðarhúsinu eru tvær snyrtingar uppi og niðri og sturtur í þeim báðum. Samtals eru því fjögur klósett á svæðinu. Ef gestir vilja bæta við klósettum er hægt að leigja klósett frá gámaþjónustunni og sér staðarhaldari um það fyrir gesti en það gjald er ekki innifalið í verði. Tvö stór tunnugrill fylgja svæðinu ( kolagrill ). Leiktæki eru tvær rólur, sandkassi, fótboltamark, körfuboltaspjald og endalaust pláss til að finna uppá allskonar leikjum. Á svæðinu eru oftast einhver húsdýr sem gleðja krakkana. Leiguverð fyrir allt svæðið er 70.000 kr frá kl. 14.00 á föstudegi til kl. 16.00 á sunnudegi sem eru ekki heilagir tímar ef svæðið er ekki að fara í aðra leigu. Nánari upplýsingar gefur Rósberg í síma 695 7218.
|
| Síðast uppfært: Sunnudagur, 13. desember 2009 13:42 |








Íbúðarhús til vinstri, sést í endan á veislusalnum og hlaðan hægra megin. Stór flöt hægra megin.
Veislusalurinn lengst til hægri séð af bílastæði. Hlaðan og fjósið til vinstri.
Veislusalur að innan.
Veislusalur framhald.
Betri stofan, oft sett borð og stólar þar inn líka.
Betri stofan framhald.
Eldhúskrókurinn/ Barinn.
Séð yfir eldhúskrók / bar.
Snyrting.
Hlaða, danspallur sem er úr timbri en hinn hluti hlöðunnar er malargólf.