| Gisting að Hrísaskógum |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator | |
| Miðvikudagur, 28. október 2009 14:12 | |
Hrísaskógar 2 í Eyjafjarðarsveit
Bústaðurinn: er 50m² auk 20m² svefnlofts. Gisting er fyrir a.m.k.8 manns. Stofa: er með sófasetti, sjónvarpi, dvd, útvarpi og kamínu. Svefnherbergi: eru 2 annað með hjónarúmi og í hinu kojur, auk svefnlofts. Svefnpláss er fyrir 4 niðri og á svefnlofti eru 4 springdýnur ásamt fleiri þynnri dýnum. Sængur og koddar eru fyrir 8. Ekki er séð fyrir rúmfatnaði nema þess sé óskað. Eldhús: eldhúskrókur, 2 eldunarhellur, örbylgjuofn og ísskáp ásamt öllum þeim útbúnaði sem prýða eldhús. WC: er með rúmgóðri sturtu. Úti: við húsið er heitur rafmagnspottur. Bæði er gasgrill og kolagrill en ekki er séð fyrir kolum. Leiktæki eru sameiginleg með öðrum fimm sumarhúsum á svæðinu. Staðurinn: Bústaðurinn er í brekku þar sem skógrækt hófst 1984 og er mikið af lerki og furutrjám. Hér er hægt að skoða myndalbum frá þessum glæsilega bústað
Myndaalbum smellið á og njótið
Hér fyrir neðan er hægt að senda inn bókunarbeiðni til að taka frá bústaðinn ákveðna helgi , haft verður samband við þig varðandi staðfestingu og greiðslu
|
|
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 22:50 |








